Mánudagur, 23. janúar 2012
Það á semsagt að greiða þetta af almannafé/skattgreiðslum okkar ?
|
Fellir niður kröfur vegna stofnfjárbréfa |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 18. janúar 2012
Samkeppni við Litla hraun?
|
Grunur um fölsuð skráningarmerki |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 12. janúar 2012
Mugison !
|
Mugison hagnaðist um 22 milljónir kr. |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 30. apríl 2011
Við ferðalok.
Það er mikil og ánægjuleg upplifun en jafnframt erfitt ferðalag að ferðast eins og við gerðum. Það þarf að skipuleggja, skoða og bóka með góðum fyrirvara og velta fyrir sér ýmsum mögueikum. Það var stókostlegt að fá að ferðast með félögum mínum hjá Air Atlanta, og gaman að fá að kynnast starfsemi og starfmönnum félagsins á erlendri grundu. Svona ferðalag er samt dýrt, sérstaklega löngu flugleggirnir og gisting á hótelum í heimsborgum. Reyndar mjög hagstætt í Kuala Lumpur. Við gistum hjá vinum okkar í Ástralíu, og nutum leiðsagnar þeirra sem var óviðjafnanlegt. Þetta er erfitt, en mjög gaman að upplifa eftir að hafa dreymt um þetta ferðalag að hluta til eða öllu leyti í raun frá því ég var smá strákur eftir að hafa sökkt mér í landafræði og mannkynsögu. Að hafa góðan úrræðagóðan, óhræddan og skemmtilegan ferðafélaga eins og Helgu mína er "priceless", annað er hægt að kaupa. Mér finnst ég vera orðin miklu auðmýkri eftir þessa ferð, eftir að hafa séð aðstæður fólks í mörgum heimsálfum. Þegar á daglega amstrið er að keyra yfir mann, loka ég augunum og ímynda ég mig standa berfættur í sandinu á ströndinni í Adelaide, í sólinni, og finna volgan sjóinn leika á milli tánna -þá verður allt gott.
Við höfum það þrátt fyrir allt mjög gott á Íslandi, hér er samfélag á heimsmælikvarða,falleg náttúra,vel menntað duglegt fólk með aðgang að nægri orku og tengslum við alla markaði heimsins. Ég get bara sagt – það er gott að láta sig dreyma, en ennþá betra að leyfa sér að lifa þá hverjir sem þeir svo sem eru. Nú er bara að láta sig dreyma um næsta ferðalag á vit hins ókunnna, nú ligg ég upp í sófa og skoða kort og gúggla, því sitjandi heima gerist ekki neitt. Meira síðar - það er plan í gangi.
Ferðalög | Breytt 2.5.2011 kl. 22:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 30. apríl 2011
Luxemborg – Álftanes
Tíma munurinn sagði til sín og við steinsofnuðum en vöknuðum síðla nætur,síðan andvaka og vorum komin á útimarkað á torginu kl 7 um morgunin. Það var ferskur hvítur aspas sem var bráðin.
Okkur leið eins og það væri miður dagur, merkilegt nokk, drifum okkur út á flugvöll og tókum SAS vél til Kaupmannahafnar. Það er eins og að vera kominn heim að vera komin á Kastrup, það er bara “strætóinn” heim til Keflavíkur, bara tæpir 3 tímar og leið eins og hendi væri veifað. Dökka parketið á gólfunum í flugstöðinni lyftir þessari byggingu í einhvern annan klassa. Þarna var hún á stæðinu TF-FIX, til að flytja okkur heim. Það er alltaf gott að ferðast með Icelandair, og nú höfum við samanburðin við mörg önnur flugfélög í ferðinni. Einkunin er góð, það er þó margt hægt að bæta, ég held þó að íslendingar komist aldrei með tærnar þar sem Malasíubúar eru með hælana þegar kemur að þjónustulund, hjá þeim er þetta í blóð borið ? “Góðir farþegar, verið velkomin heim” – þetta er óviðjanfnanlegt ávarp sem nú öðlaðist aðra merkingu eftir ferð hinum megin á jarðarkringlunni.Bína kisi var með einhvern fýlusvip þegar hún kom til dyra, eins og hún er alltaf þegar maður eru búinn að vera að heiman í einhvern tíma. Allt var eins og við höfðum skilið við það, nú er bara að bretta upp ermarnar og hella sér í verkefnin sem bíða heima og í vinnunni. Það er komið sumar, það finnst en sést reyndar ekki, því það snjóar úti, reyndar einhver hundslappadrífa sem er eins og þögul mótmæli vetrarins að nú sé verið að yfirbuga hann – yndislegt að vera komin heim. Það er hvergi betra en á Íslandi.Ferðalög | Breytt s.d. kl. 21:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 29. apríl 2011
Kuala Lumpur - Singapore Luxembourg- 40 klst
Það er eitt að gista í borginni Kuala Lumpur og annað að ferðast um Malasíu. Landið er mjög fallegt. Við erum við miðbaug, þannig að hér erum við í stórum dráttum að aka í gengum frumskóg, með bygðarkjörunum á leiðinni. Hann kom um hágdegisbilið bílstjórinn. Við tókum bíl með bílstjóra frá Kuala Lumpur til Singapore. Það borgar sig þegar öllu er á botnin hvolft, þótt flugið sé ekki nema 50 mínútur. Það kostar að komast út á flugvöll, um 1.klst, bíða, fljúga, komast út, og komast aftur til baka í miðborgina. Fyrir sama verið fáum við bílstjóra á um 7 klst ferðalagi um Malasíu, sem stoppar og sýnir okkur það sem áhugvert er. Við stoppuðum í nýju hverfi skammt fyrir utan Kuala Lumpur, kallað Putaraya þar sem öllum opinberum byggingum hefur verið komið fyrir í einu stóru hverfi hönnuðu frá grunni. Fallegt og haganlega fyrir komið, í raun listaverk á köflum.
Þá stoppuðum við í borginni Melaka sem er við hafið og þar stofnuðu Portúgalar nýhlendu á 15. öld. Sum húsin eru enn til staðar, og gamli borgarkjarninn á heimsminjaskrá UNESCO.
Við landamæri Singapore var talsverður erill og löng bið, enda fólk að koma frá vinnu. Það vekur athygli hvað það er ströng landamæra- og tollgæsla, hjá þessum fyrri samherjum, sem eru ein þjóð í tveimur ríkjum, með sitthvoran gjaldmiðil. Þar löng saga sem bílstjórinn sagði okkur frá, en ég var ekki miklu nær. Það virðist ekki þurfa mikið til að bræður deili og berjast um völd og peninga.Singapore sem er tiltölulega lítð svæði, í raun eyja er stórveldi í viðskiptum og það sést á útliti borgar og fólks. Hér er greinilga mikið ríkidæmi á köflum, og spilling að sögn leiðsögumans okkar. Við vorum orðin ansi framlág þegar við komumst á hótel, fegum okkur kínamat, og biðum síðan eftir kalli til að geta hitt áhöfn farskjótta okkar til Evrópu. Það varð talsverð seinkun vegna tæknilegra vandamála, en við áttum að fara af stað um nóttina kl 2 en fórum 8 um um morgunin. Við vorum komin út í vél og gátum lagt okkur en ekki sofið mikið. Flugið til Baku í Azerbajan gekk áfallalaust, og við lenntum þar um kl 2 á staðartíma e. 8 tíma flug. Tveggja tíma stopp til að tanka ferlíkið og landamæravörðurinn í græna búningnum var mættur upp á dekk um leið og var lengi að skoða og stimpla passa. Þetta tók sinn tíma. Ný áhöfn og svo aftur af stað til Luxemborgar í rúma 4 tíma og lenntum þar upp úr kl 5 um eftirmiðdag að staðartíma. Það er óhætt að segja að manni hafi brugðið í brún, ég var enn á stuttbuxunum og kalt rigningaveður ollu ekki hrifningu. Skrítið að koma aftur til Evrópu, hér er mennigin allt önnur og allt í föstu virðuleg formi. Fágun og viðruleiki í stað hávaða,óreiðu,hita og ólyktar í Asíu. Við vorum orðin ansi framlág, en drifum okkur í heppilegan galla og fórum út að borða. Það er vor allt í blóma og tími hvíta asparsins er kominn, algert sælgæti með hollandaise sósu og góðu móselvíni. Það slokknaði fljótt á manni.
Ferðalög | Breytt 2.5.2011 kl. 22:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 28. apríl 2011
Kuala Lumpur.
Við lenntum seint, bíll á hótelið, um 1 klst. Heitt og rakt. Móttökurnar á Hótel Istvana voru höfðinglegar. Þetta er svo sem ekkert 5 stjörnu hótel, en hér eru allir í stöðugum tangó að koma til móts við óskir gestanna. Mér datt nú í hug að að ekki er nú þjónustulundinn það sem íslendignum er í blóð borið þó að vissulega fari atferlið skánanadi. Við slógum á að hér gistum við í 3 nætur, svipað verð og á KEA á Akureyri. Ekki að ég ætli að kast rýrð á þann ágæta gististað í annari heimsálfu, þar sem mörg gleðistundin tengd skíðaiðkun og vinnu hefur átt sér stað. En hér með morgunmat, eftirmiðdagstei, sundlaug, “gleðistund” ( happy hour) milli 17.30 og 19.30- innifalið. Barinn opinn, ekki það að við hefðum verið að kneifa ölið mikið þó sumir landar okkur hefðu án ef gert það. Gestrisnin- óviðjafnanleg, hér bukka sig allir og beygja þegar við komum að, eitthvað sem íslensk ferðaþjónusta á langt í land með.Borgin er í einu orði sagt- stórkostleg ! 35 grC, 90% raki og brennandi sól. Við fórum í skoðunarferð með rútu – hér er allt – garðar, söfn, saga, veitingastaðir, og ég hætti að telja. Hér er aðalfarartækið vespur, og við höfum aldrei séð aðra eins gommu af vélhjólum. Prófuðum Malasískt nudd sem var mjög gott.Við sættumst á að kínahverfið “Chinatown” væri gaman að skoða nánar. Bjálaður útimarkaður sem yfirþyrmir skiningarvitin með hávaða og lykt. Hér er allt til, nefndu það, Gucci, Louis Vouttone, Rolex, Breitling, Gucci, - allt eftirilíkingar, og sumar ótrúlega góðar. Við kíktum, prúttuðum og fannst við gera ágætiskaup. Góður dinner, og drykkur í risastóru glæsilegu andyri á hótelinu. Á morgun Bílferð til Singapore á móts við TF-ANC sem verður þar fullhlaðin með frakt á leið til Evrópu og við fáum að gista á efri hæðinni á leiðnni heim í vorið, víðáttuna og sumarið heima á Íslandi, sem við þráum eftir þrúgandi hita, raka og mannmergð- mikið höfum við það gott heima á Íslandi.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 01:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 28. apríl 2011
Adelaide – Kuala Lumpur.
Við ákváðum að taka heimferðina í áföngum. Það lá vel vð að fljúga frá Adelaide í Ástralíu til Kuala Lumpur í Malasíu. Eftir leit á netinu fundum við flug með Malaysian flugfélaginu á góðu verði. Við náum með þessu að ferðast í 7 tíma og minnka tímamuninn um 3 klst. Það er enn 22 klst flug til Evrópu og svo einum við eftir að taka taxann heim frá Köben. Flugið með Malaysian var upplifun. Þjónustulundinn er einfaldlega yfirgengileg. Þetta er ekki í neikvæðri merkingu. Á flugvellinum í Adelaide voru móttökurnar eins og á 1. farrými og við vorum “afturí”. Þau buðu okkur allt, við fengum sæti við útgang og 3 metra af fótaplássi. Það var erfitt að kveðja Mike og Paulu, þau eru hjartans vinir okkar. Við höfum bæði sagt að það er algjör hending að hitta svona vini á efri árum. Þurrkuðum trárin og hétum því að hittast sem fyrst í Orlando. Flugið sem við fórum með Malaysian var engu líkt. Mér leið eins og prins, stjanað við mann, og koddinn lagaður, hvað vantar þig? , má bjóða þér eitthvað að drekka ? , viltu kodda ?. Þetta er einstakt. Við lenntum í Kuala Lumpur e. 7 tíma flug, eiginlega endurnærð, og það sem átti eftir að koma var enn stókostlegra.
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 26. apríl 2011
Ástralía kvödd
Í fyrsta skipti í langan tíma langar mér ekki heim úr fríi. Í Ástralíu er frábært að vera. Veður er gott, náttúran falleg og fólkið yndislegt. 10 dagar líða allt of fljótt því það er margt að skoða. Reyndar er eyjaálfa ógnarstór og rúmar þrjár klukkustundir tekur að fljúga yfir hana þvera. Í norðri er hitabeltisloftslag en í suðri má líkja því við miðjarðarhaf. Það er búið að vera mjög gaman að vera með vinum okkar Mike og Paulu. Þau eru hér öllum hnútum kunnug og höfðu leigt hús við ströndina með einstöku útsýni yfir haf og strönd. Sólsetur voru falleg, en ég var ekki búinn að venjast því að sólin sest í vestri, frá hægri til vinstri, og norðanáttin ylvolg, en sunnaáttin svöl. Hingað kem ég aftur.
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 25. apríl 2011
Hjólastígar
Það er gaman að fylgjast með því hvað Ástralar eru mikið fjölskyldu og útivistarfólk. Hér eru mjög margir sem stunda göngu hlaup og hjólreiðar, gjarnan heilu fjölskyldurnar saman. Hér liggja hjólastígar um alla borgina oft haganlega fyrir komið þannig að náttúran njóti sín sem best. Af og til eru bekkir og stöðvar þar sem hægt er að gera teygjur og jafnvel einföld lyftingartæki. Ég er nú á viku búinn að hjóla um alla ströndina og alla borgina og hef tekið talsvert af myndum sem fylgja hér.
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)


astahulda
sverrirt
lucas
evorally
sigurbjorns
sigsig
ippa



