Frjálst er í fjallasal.

Í dag fórum við í ferð um fjöllin hér í nágrenni Castejon de Sos í Pyrenníafjöllum.  Við völdum útsýnisleiðir og fjallaskörð í google maps í gærkvöldi og hlóðum leiðinni inn í Geirþrúði, sem mótmælti ekki, eigin mánudagsfýla í henni.

Hún leiddi okkur svo í dag um fagran fjallasal, og ég upplifði frelsistilfinningu.  Það er ekki hægt að lýsa öllu sem bar fyrir augu, en látum myndirnar tala. 

IMG_1447IMG_1451IMG_1457IMG_1468IMG_1472IMG_1484IMG_1488Screen Shot 2014-09-08 at 17.04.15

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Á morgun - Andorra. 

P1050957

Í fjöllunum

Það er dáldið erfitt að lýsa tilfinningunni í mótorhjólaakstri.  Það er einhver ólýsanýleg frelsistilfinning.  Þú skynjar náttúruna og umhverfið á annan hátt, það er lykt, ljós hitastig og útsýni.  Þannig er hægt að horfa 260 gráður á svipstundu og 180 gr. upp og 45 gr. niður.  Tækið verður einhverskonar framlenging á manns fínustu taugum líkamans.  Þetta er örugglega bráðhollt segir endurhæfingarlæknirinn.

 

IMG_1427

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég er búinn að hjóla á mótorknúnum vélfák síðan ég var 13 ára og er búinn að taka í sundur og setja saman mörg mótorhjól.  Þetta er eins og úrverk, og verkfærin eftir því.  Bílaviðgerðir eru bara hreinn groddi í samanburði við það.  Það eru mörg vetrarkvöldin sem ég hef setið í skúrnum og gert við, bætt og endurbætt fyrir sumarið.

Þess vegna eru svona ferðir svo dýrmætar.  Ég er reyndar á nýju hjóli, það er það sem hægt er að kalla “state of the art”.

Svo er það ævintýrið að ferðast á svona tæki, maður tekur bara með sér það sem er nauðsynlegt, annað skiptir ekki máli.  Maður reynir á sjálfan sig, sinn karakter, gefast ekki upp, lesa fólk og njóta augnabliksins.  Ég hef það alltaf að leiðarljósi að koma heill heim, vonandi betri maður fyrir mig og mína.

 

IMG_1434

 

 

IMG_1438

 

 

 

 

 

IMG_1426

 

 

 

 

 

 

IMG_1439

 

 

 

 

Við nafni lögðum af stað í morgun frá Bordoux héraði eftir að hafa spurt Geirþrúði ráða.  Hún ráðlagði okkur ákveðna leið sem við breyttum til að vera ekki í mikilli umferð en í sveit, sem hún samþykkti.

 

Morguninn var svalur, en það hlýnaði fljótt, gripu kaffi og crossant á útistað og svo var stefn suður.  Falleg leið, meira en það, stórkostlega falleg, vínakrar og skógur og vegurinn sveiflaðist upp og niður og vestur og austur. Við áðum nokkrum sinnum og nutum mannlífsins í litlum bæjum Frakklands, sátum á bekk og fylgdumst með.  Það var brúðkaup í gær á leiðinni og í dag var það mót lúðrasveita.

 

P1050921

 

 

 

 

 

 

 

 

Þegar við áttum um 150 km eftir á áfangastað í Spænsku fjöllunum birtust þau.  Eins og voldugur veggur, eða brotsjór á leið á skip. Smám saman færðust þau nær og urðu risavakin og við fórum að fara inn í djúpan dal með háum fjöllum.  Það er búið að vera heitt í dag, allt að 30 gr. en nú kólnaði aðeins.  Við vorum komnir upp í 700 m. hæð í fjallasalnum þegar við komum að spænsku landamærunum.  Það var eins og við mannin mælt þá byrjuðu vandræðin.

 

Um það bil sem ég var að fara yfir landamærin, en þau eru auðkennd með svona eins og biðskýli strætó í litlum steinhúsabæ í fjallasalnum, þá skeði það.

 

P1050927

 

IMG_1444

 

 

 

 

 

 

 

 

 Það var vespa inni í hjálminum !!!!!  - Ég veit ekki hvernig hún kommst inn en hún var þarna.  Ég negldi niður og lyfti upp “kjálkanum” á hjálminum, reif hann af mér og blés hana burt.  Bullandi hjartsláttur og uppnám – en þetta slapp.  Ég lagði af stað, og hvað skeður þá ?

 

P1050924

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þrumur og eldingar og steypiregn í fjöllunum.  Suðvestan áttin á Álftnesi í 20 m/s er eins og Vínardrengjakór miðað við þetta.  Við nafni skelltum okkur útaf undir stórt eikartré og söfnuðum hugrekki að halda áfram. “skúrin” sem var eins og fellibylur, en gekk yfir.   Við skelltum okkur í regngallann og áfram.  Meira regn. 1400 m og þá 5 km löng göng.  Hinu megin í 1600 m. var sól og allt þurrt.  Það fór úr 29 gr. niður í dalnum niður í 13 gr. í göngunum og svo hlýnaði hinum megin.  Smá dropar og svo allt þurrt og allt í einu var orðið sjóðandi heitt í gallanum.  Við ókum síðan krókóttan smáveg með nýju malbiki, minnir á Lyngdalsheiðina gömlu plús skógur ansi greitt.

 

 

IMG_1445

 

 

 

 

 

 

 

 

Nú erum við komnir í Castejón de Sos á Spáni í hjarta Pyrenníafjalla.

Fjöllin bíða morgundagsins okkar- við sjáum þau út um gluggann.  Spáin er góð framan af degi en síða úrhelli.  Borðuðum úti og hittum nokkra mótorhjólamenn, bræður okkar, Írar sem tóku okkur eins og týndu sonunum, skál og allt það úti við í blíðunni.  Við förum því snemma í bælið.  Spáin er þokkaleg, þurrt í fyrramálið en þungar skúrir í fjöllum síðdegis – við verðum komnir snemma heim hingað á okkar gistingu.


Þar sem hjarta Frakklands slær.

Frakkar eru sérstök þjóð.  Ég er búinn að ferðast víða, en aldrei kynnst fólki sem er almennt með það sem kallað er á ensku “attitude problem”.  Þeir þykjast ekki kunna ensku en gera það samt margir.  Menn hafa leitað skýringu á þessu fyrirbæri og telja að hennar sé að leita í margra alda erjum Englendinga og Frakka.  Þetta voru tvö heimsveldi sem stjórnuðu heimilinu um tíma og víða eru nýlendur sem þar sem þeir komu á fót sinni menningu bæði í austur og vesturheimi.  Þegar maður kynnist þeim nánar og reynir að tala frönsku, sem er nú ekki mitt sterkasta mál, kemur allt annað upp á teningnum.  Þeir eru elskulegir, hjálpsamir og yndislegir.  Þeir eru hinsvegar yndislega óskipulagðir og ástríðufullir.

IMG_1398

 

 

 

 

 

 

 

 

Við gistum hjá yndislegri ungri fjölskyldu í stóru 500 ára gömlu húsi bak við kirkjuna í litla þorpinu Lazigne sem mér dettur í hug að líkja við Búðareyri í Hrútafirði. Þau eiga tvö yndisleg lítil börn sem minna mig á barnabörnin mín.

Það var morgunmatur í eldhúsinu hjá þeim að frönskum hætti, mikið brauð álegg og kaffi.  Bóndinn stökk út í bakarí hinum megin við götuna og náði í svona dæmigerð löng frönsk brauð, glð﷽﷽﷽﷽﷽﷽﷽﷽igerð löng frönsk brauð, glta langa, slaka umhverfi, einginn að flskóðvolg.  Með okkur var eldri maður, fæddur í Írak en hafði búið alla ævi í Englandi og var kominn á eftirlaun.  Þarna upplifir maður þetta langa, slaka umhverfi, enginn að flýta sér, langar samræður, allir sögðu frá sér og sínum högum.  Heil klukkustund í morgunmat ? – þetta gengur ekki í mótorhjólaferð hjá okkur víkingunum, svo nú var bara að drífa sig af stað.

 

IMG_1408IMG_1409

 

 

 

 

 

 

 

 

Við áttum frábæran dag í gengum sveitir Frakklands.  Við ákváðum að stefna á Bordeux héraðið, og hér erum við í littlu þorp í hjarta vínræktarhéraðsins. Geirþrúður leiddi okkur gegnum Frakkland á fallegum leiðum. Við reyndar sögðum henni aðeins til í byrjun og stungum upp á aukaleiðum og hún samþykkti, enda fórum við blíðlega að henni í morgunsárið.

 

IMG_1413P1050894

 

 

 

 

 

 

 

 

VIð komum við í "blómabæ" sem Hveragerði gæti tekið sér til fyrirmyndar.  Það var búið að þræða blóm á línur yfir öllum miðbænum. Það var 20 gr hiti og ekki ský á lofti þegar við lögðum að stað í morgun og sló í 29.5 þegar við vorum komnir á áfangastað Hotel Le grand de Sel í bænum í litla bænum St Foy la Grande í hjarta Bordeux héraðs.

Það smá hitnaði á leiðinni og ég varð að rífa allt innan úr gallanum það sem er hugsað fyrir norðurslóðir og var á bol og nærbuxum undir.

 

Fallegar leiðir gegnum sveitir Frakklands og góður hádegisverður við Chataue al la Mairie, lítill bær með stórum kastala og góðum veitingastað.

IMG_1418IMG_1421IMG_1422

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Seinnihlutinn var alveg frábær, nafni hafði valið sveitavegi síðasta spölin og það var sannarleg mótórhjólaveisla.ður﷽﷽﷽﷽﷽﷽﷽að mótmæla henni, þunkt og þangað leiðir ha ið með öðrum, fyrst mömmu og pabba, svo kærustunni sem varð konan mýir﷽﷽﷽﷽﷽﷽﷽st að það þur inn punkt og þangað leiðir ha ið með öðrum, fyrst mömmu og pabba, svo kærustunni sem varð konan m

 

Þau tóku vel á móti okkur hjónin á Hotel Le grand de Sel hann er Hollendingur en hún er frönsk og þau voru búin að vera hér lengi.

Hann lýsti efnahagsástandinu sem hræðilegu. Þeir ríku ættu allt, millstéttin stritaði fyrir háum sköttum og svo væri mikil ásókn fátækra frá gömlu nýlendunum sem leituðu að framfærslu í “kerfinu” og það væri mikið atvinnuleysi og mikil svört atvinnustafsemi.

Þau framreiddu frábæran mat, önd úr héraði, úrvals Bordeux vín ( úr héraði ) og ís og kaffi á eftir.

IMG_1425

 

 

 

 

 

 

 

 

Á morgun Pyrenníafjöllin við ætlum að biðja Geirþrúði varlega í fyrramálið vinsamlegast að leiðbeina okkur á svæði vestan við Andorra og vera þar í nokkra daga og hjóla um fjöllin. 

Spáin er góð, það verður bara gaman.

 


Í Frönsku sveitinni.

Ég var búinn að gleyma því hvernig er að ferðast einn.  Ekki að það sé slæmt, það er bara þannig að alla ævi hefur maður verið með öðrum, fyrst mömmu og pabba, svo kærustunni sem varð konan mín og svo með börnunum.  Það er orðið dáldið langt síðan ég var aleinn á ferð. Það er als ekki slæmt.  Það er vissulega betra á mótorhjólaferð að vera með öðrum, það getur ýmisleg komið upp á, tæknileg vandamál, samskiptavandamál, tungumálavandamál, að rata ekki vandamál.  Þetta er þó betra en áður, þar sem hjólin eru öruggari og gangvissari og allur búnaður betri.  Þar ber ekki síst að nefna Geirþrúði eins og hún er kölluð á mínu heimili.  Þetta er náttúrlega Garmin GPS staðsetningarbúnaðurinn.  Þetta er hreint út sagt ótrúleg græja.  Maður setur inn punkt og þangað leiðir hún mig.  Ég hef vanist að það þýðir ekki að mótmæla henni, þó maður haldi annað, hún hefur alltaf rétt fyrir sér eins og mamma.  Þannig hefur hún leitt mig á áfangastað á ótrúlegum krókum en alltaf kemst maður á stysta tímanum og fallegustu leiðina.  Það væri gaman ef svona tæki væri til, einskonar lífs-gps sem sendi mann á réttu leiðina alla ævi.

 

IMG_1384

 

 

IMG_1388

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég vaknaði í morgun á ferjunni eldsnemma, tímamunur orðinn 2 klst.  Fór út og andaði að mér fersku sjávar loftinu og fékk mér góðan morgunmat.  Svo var bara að pakka, fara niður á dekk, koma dótinu á hjólið og vera tilbúinn þegar ferjan kom á land og dyrnar, mér væri nær að segja húshliðin opnaðist.

 

Ég hitti hjón frá Írlandi sem eru á sama aldri, besta aldri, börnin farin og vinnan ekki að drepa fólk.  Þau voru á GS hjóli eins og ég og voru á leið til Spánar, fara á hverju ári, þau ætla til Íslands á næsta ári, þ.e. eftir að ég var búinn að sýna þeim myndirnar mínar á símanum.

 

IMG_1391

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er eins og að skipta um gír að koma til Frakklands, það er hægri umferð, allt er illa merkt og einginn skilur neitt.  Það var bara að spyrja Geirþrúði, ég ætla að hitta nafna í þorpinu Lazigne, sem var tæplega 400 km leið.  Ég stoppaði á rúmlega klst fresti í littlum þorpum yfirleitt á torginu.  Þetta er dáldið líkt allt, gömul steinhús, kirkja, torg, litlir veitingastaðir – alveg frábært.  Ekki spillti veðrið, 20-26 gráður í dag, hálfskýjað og logn.  110 (km/klst) vegirnir eru merktir N, og síðan koma minni vegir sem eru merkti D.  Umferðin var hæfileg.  Það var dáldill spenningur að hitta nafna, og kl 16.40 var ég kominn á torgið í Lazigne og stöðvaði, þar, fáir á ferli, kirkja, veitingastaður, en ekkert hótel, sem var punkturinn.  Þá kom nafni á spretti bak við kirkjuna á stuttbuxum, hann hafði heyrt í bimmanum ( BMW –hjól).  Það urðu fagnaðarfundir.  Þetta er 500 ára gamalt stórt stein hús á 3-4 hæðum sem ung hjón keyptu og eru að gera upp. Þau búa niðri með tveimur litlum skoffínum sem minna mig á barnabörnin mín. Yndislegt fólk. 

 

P1050873IMG_1392IMG_1395

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Við settumst út í garð, þar sem við settum hjólin bak við hlið undir tré með útsýni yfir sveitina.  Smá hvítvín úr heimabyggð – það gerist ekki betra.  Fórum í kvöld á eina veitingastaðinn í þorpinu og fengum Crepes, aðal og eftirrétt.  Ég bað um minn venjulega eftirrétt, vanilluís, súkkulaðisósu og þeyttan rjóma og fékk það á pönnuköku, reyndar með saltri karamellusósu úr héraði, hef ekki smakkað það betra.  Þau töluð ekki orð í ensku hjónin á þeim stað en það skipti engu máli.  Lúxus máltíð f. tvo með víni, og góð þjónusta 40 Evrur- já sæll.

Á morgun niður frakkland og niður í Pyreniafjöll á Spáni – bara gaman --spáin er góð :=)) ður﷽﷽﷽﷽﷽﷽﷽að mótmæla henni, þunkt og þangað leiðir ha ið með öðrum, fyrst mömmu og pabba, svo kærustunni sem varð konan mýir﷽﷽﷽﷽﷽﷽﷽st að það þur inn punkt og þangað leiðir ha ið með öðrum, fyrst mömmu og pabba, svo kærustunni sem varð konan m


Dublin- Frakkland

Ég var snemma á fótum og var dálítið spenntur að sjá hvernig það myndi ganga að ná Doctornum út úr tolli á flugvellinum.  Michael Clince Bláfuglsmaðurinn í Dublin kom og sótti mig á hótelið kl 8.  Mjög þægilegur maður og við spjölluðum heilmikið saman.  Hann hjálpaði mér að ná hjólinu út úr tollinum, við endasendumst milli margra aðila, en þetta gekk.  Rúmlega kl 9 var hjólinu rúllað út úr vörugeymslunni.  Það sá ekki á Doctornum hann var alveg óskaddaður eftir ferðalagið.  Ég dreif mig í gírinn og var farinn af stað 9.40.  Veðrið var yndislegt 19 gr hiti og sól.  Þegar ég hafði keyrt smá stund var mér farið að hitna á höndunum og sá það að hitinn var á handföngunum eftir síðustu ferð á Íslandi í næðingi.

IMG_1353IMG_1354IMG_1355

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég ók M50 gegnum Dublin og suður til Rosslare um 3ja tíma ferð.  Ég stoppaði á leiðinni, og fékk mér kaffi og pæ í blíðunni.  Ákvað líka að taka sveitaveginn síðast, hann minnti mig á Galloway þar sem ég á mínar rætur að hluta.  Tankaði Doctorinn enda hann orðinn þyrstur.

IMG_1359IMG_1360

 

 

 

 

 

 

 

 

Þegar ég kom á ferjustaðinn var heilmikil umferð, mótorhjól og húsbílar og önnur faratæki. Hitti náttúrlega strax mótorhjólafólk, íra, frakka og þjóðverja og allir dáðust þeir að Doctornum og uppruna hans á Íslandi og sögum af ferðalögum og náttúru.  Ég held að þeir ætli allir til Íslands næsta sumar.  

IMG_1365IMG_1366IMG_1368

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þarna beið ferjan Oscar Wilde frá Irish Ferries,sem ég held að Norðmenn eigi. Rúllaði um borð, var komin úr gallanum vegna hitans og með derhúfu.  Mikið og stórt skip og ég fékk ágætis kabínu sturta og alles. Skellti mér í sturtu og“sprittgallann” og settist út.  Þetta er eins og skemmtiferðaskip.  Ég sat úti við brottför í blíðunni með einn Írskan ískaldan og naut blíðunnar. Það var farið að vagga eftir kvöldbitann svo ég lagði mig bara og lagðist í sjóvarp lestur og skiftir.

Það er merikleg upplifun að fara með hjólið sitt í flugi og á skipi á nánast sama sólarhring og skipta um umhverfi og verðurfar.

Á morgun Frakkland, og ég ætla að hitta nafna Bjarnason vin minn í litlum bæ þar sem hann er að skoða eitthvað í sínu fagi, ég held að það sé einhver “rotþróarsugu” framleiðandi fyrir vörubíla.  Við förum svo áfram suður – spáin er mjög góð.


Reykjavik Dublin

Ég er búinn að ganga með í maganum í nokkurn tíma að hafa hjólið mitt erlendis yfir veturinn og nota það eins og hægt er í stað þess að láta það sitja inni í skúr í 6-7 mánuði yfir veturinn.  Það eru eingin not af þvi það tekur pláss og verður rafmangslaust.  Það eru líka mörg kvöldin og næturnar í skammdeginu sem maður hallar sér aftur og óskar þess að vera í mótorhjólaferðalagi.  Það jafnast fátt á við það.

Vinur minn til margra ára Guðmundur Bjarnason og ferðafélagi var á leið í Evrópuferð í haust.  Hann fór með Norrænu síðustu viku með hjólið sitt og er kominn til Þýskalands.  Ég var alveg friðlaus, og ákvað að skella mér með og geyma Doctorinn úti í Evrópu í vetur.  Þannig er hægt að fara einu sinni eða tvisvar í ferð og skoða heiminn.

Vinir mínir hjá Air Atlanta og Bláfugli sáu eingin tormerki á þessu.  Ég er kominn til Dublin á Írlandi með Doctorinn og er á leið á morgun fimmtudag, niður til Rosslare á Írlandi til að taka ferju yfir til Frakklands.  Stefnan er tekin á Pyreniafjöllin og síðan ætlar Doctorinn að hafa vetrardvöl í Mílanó hjá Sigga Sigfúsar vini mínu sem þar er með aðsetur.

Spáin er góð - það eru bjartir dagar framundan á fleiri en einn hátt.

Takk Bláfugl! :=))IMG_1352IMG_1346


Höfundur í Aksjón !

Get ekki stillt mig um að leyfa bloggvinum að deila þessu áhugamáli með mér.  Kristján vinur minn Gíslason tók og klppti þetta myndband af ferð í Húsavík við Loðmundarfjörð í sumar.  Það er ekki hægt að lýsa þessu það er bara að njóta.  Svona eyðir maður sumrinu í frítíma þegar kona, börn og barnabörn leyfa.

 

 

Afritið tengilinn hér fyrir neðan og setjið inn í vafrara. 

http://kgisla.com/Site/2013.08.17_Hjolad_fyrir_austan.html 


Lakagígar-Þakgil - Hekla.

 

Screen Shot 2013-07-19 at 22.13.11

 

 

 

Því verður ekki líst með orðum heldur eingöngu myndum sú ferð sem við fórum félagarnir úr BMW klúbbnum nýlega - það er bara að njóta myndaalbúms Kristjáns Gíslasonar hirðljósmyndara kúbbsins á krækjunni hér að neðan.

http://kgisla.com/Site/2013.06.29_akgil_BMW_myndir.html 


Akureyri - Reykjavík.

Það var bongóblíða fyrir norðan á þriðjudagsmorgni.  Við þurftum eitthvað að sinna vinnunni, ég hafði reyndar verið "á stofunni" daginn áður með móttöku á Akureyri.  Þetta er það sem menn kalla " work and play".  Við tönkuðum og fórum út úr bænum um kl 11.  Það var 18 gr. hiti og sól og fór upp í 19 á leið upp Hörgárdal og upp á Öxnadalsheiði. Það var ennþá heitt en kólnaði síðan alveg niður í 11 gráður þegar við fórum inn í Skagafjörðin á láglendi.  Við áðum við Ásgarð " kaffi GS" í boði nafna með samloku.  Við fórum síðan yfir vatnskarð og yfir í Svínadal áleiðis á Húnavelli. Þá kom ísköld þokan með hafátt inn og hitinn fór í 6-7 gráður.  Það létti aftur til og við fórum um Borgarvirki og áleiðis á Hvítserk.  Þeir eru góðir malavegirnir þar  fyrir GS-inn, hraðir og öruggir.  Við vorum dáldið á báðum áttum hvort við ættum að fara fyrir Vatnsnesið en létum okkur hafa það, þokan var dimm og köld en það létti til á leið suður með hafáttina í bakið hiumegin. Smám saman birti til og við ókum fallega leið gegnum Hvammstanga og áðum á gatnamótunum við þjóðveg 1 með kaffi og samloku.  Nú var farið að þykkna upp en þurrt og hitinn hélst í rumu 10 gráðum.  Planið var að fara Haukadalsskarð yfir í Dali en það var lokað svo það var bara strikið heim gegnum Borgarnes. Það hlýnaði en vindur jókst.  Það var rok fyrir Hafnarfjall og enn meira á Kjalarnesi.  Það hélst þurrt alla leið þó skúraleiðingar væru í grennd.

1650 km takk fyrir - ógleymanleg ferð með nafna.  Við höfðum sigrað Fontinn og hann ók á móti okkur í logni og blíðu.  Gleymist seint - Bara gaman !! 

 DSC01884 


Akureyri - Fontur

Við vöknuðum snemma á sunnudegi og drifu okkur af stað upp úr kl. 8.30.  Það hafði rignt um nóttina, en var að þorna - sæmilega hlýtt.  Tókum strikið á Húsavík en urðum að fara hjáleið af því að aurskriða hafði fallið við Ystafell.  Þegar við nálguðumst Húsavík var farið að súlda og nánast rigna en þokann var að lyfta sér.  Við fórum síðan fyrir Tjörnes í rigningu en það þornaði upp í Kelduhverfi.  Áfram og áðum í Ásbyrgi, blnkalogn, skýjað og 12 gr hiti.  Fórum síðan norður , áðum á Kópaskeri, áfram yfir nýju Öxarfjarðarheiði og á Þórshöfn.  Fengum okkur kaffi á bryggjunni og svo áfram út Font á Langanesi. Vegurinn var fyrst þokkalegur en síðan smá versnandi og endaði í moldarslóða. Stoppuðum við gamalt eyðibýli "Læknabrekku" og þar sáu við hvalavöðu undan ströndinni. Það hékk þurrt, en svo lygndi, já blankalog og sólin spratt fram yst úti á Fonti.  Við höfðum náð áfanganum.  Svo lögðum við okkur í grasið, í logninu og sólinni, yst út á annesi Íslands og það var alger þögn - yndislegt.  Leiðin til baka gékk vel,  fengu GS kaffi í fjöruborðinu og svo Þórshöfn, Vopnafjörður, Hólasandur, Mývatn, og Akureyri.  Samtals 7OO km. í dag, þreyttir og sælir, fengum okkur djúpsteiktan fisk og franskar heima og slökuðum á eftir 12 klst mótorhjóladag - tóm hamingja eins og Líklegur segir.

DSC01919DSC01920

DSC01912DSC01922DSC01926


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband